Sopolish er háþróað gellökkunarkerfi sem hentar öllum sem vilja bjóða viðskiptavinum sínum fljótlega, örugga og fagmannlega meðferð með 14 daga endingargóðri áferð. Þetta námskeið hentar jafnt reyndum naglafræðingum sem vilja bæta við sig vöruúrvali sem og þeim sem vilja sérhæfa sig í háklassa gellökkun.
Á námskeiðinu kynnist þú Sopolish-kerfinu frá grunni, lærir rétta ásetningu og fjarlægingu, og færð innsýn í hreinlæti, undirbúning og viðeigandi verkfæranotkun án þess að þurfa að pússa náttúrulega nöglina
Námskeiðið samanstendur af bóklegri og verklegri kennslu, þar sem þú færð leiðsögn, æfingu og ráðleggingar frá reynslumiklum kennara. Að loknu námskeiði ertu tilbúin(n) að innleiða Sopolish á faglegan og öruggan hátt
Skráning og fyrirspurnir má senda á zivaehf@gmail.com
← Til baka